Í prófun

Bókhald sem
skilur íslensku.

Við erum að smíða næstu kynslóð fjárhagskerfa, með innbyggðum stuðningi við íslenska banka, stéttarfélög og skattkerfið.

Við sendum engan ruslpóst. Við látum þig vita þegar opnar.

Kvittanaskanni

Taktu mynd af kvittuninni með símanum og gleymdu henni svo. Kerfið les sjálfkrafa dagsetningu, upphæð og söluaðila.

Bankinn beint inn

Tengdu bankareikninginn þinn og sjáðu færslurnar streyma inn. Kerfið flokkar útgjöldin fyrir þig svo þú þarft ekki að gera það.

Engin lykilorð

Skráðu þig inn með andlitinu (FaceID) eða fingrafari. Það er öruggara og þú þarft aldrei að muna flókin lykilorð aftur.

Launakeyrsla

Fullkomin launakeyrsla með stuðningi við séreign, orlof og sjálfvirk skil á staðgreiðslu og tryggingagjaldi.

Sjálfvirk VSK-skil

Við lokum VSK-tímabilum, reiknum uppgjörið og sendum gögn til Skattsins – allt á einfaldan og öruggan hátt.

Alltaf uppfært

Kerfið sækir sjálfkrafa nýjustu upplýsingar frá lífeyrissjóðum og stéttarfélögum. Þú ert alltaf með réttu tölurnar.